|
Velkomin á heimasíðu Erfðabreytt.net
Erfðatækni er í senn flókið og umdeilt viðfangsefni og vísindamenn greinir á um hversu örugg hún er. Þessari heimasíðu er ætlað að útskýra gen og hvernig þau eru notuð í erfðatækni. Hún fjallar einnig um hugsanleg áhrif erfðabreyttra matvæla og lyfjaplantna á umhverfi okkar og heilsufar, kannar áhættu og ágóða sem fylgja erfðabreyttum afurðum, lýsir því hvernig neytendur geta tryggt valfrelsi sitt á markaði, og dregur saman þessi mál með yfirliti yfir algengustu spurningar sem um þau vakna. Heimasíðan kortleggur lög og reglur sem gilda um erfðabreytta framleiðslu og flytur nýjustu fréttir af því sem gerist á þessu sviði á Íslandi.
|
|