Umfjöllun um útiræktun erfðabreyttra plantna

Ráðgjafarnefnd um eb-lífverur klofnar í afstöðu sinni


Ráðgjafarnefnd um erfðabreyttar lífverur er annar af tveimur lögboðnum umsagnaraðilum Umhverfisstofnunar þegar fjallað er um umsóknir um leyfi til sleppingar á erfðabreyttum lífverum. Hingað til hefur nefndin gert litlar sem engar athugasemdir við slíkar umsóknir. Í umfjöllun um fyrirliggjandi umsókn um útiræktun á erfðabreyttu byggi til lyfja- og iðnaðarframleiðslu brá hinsvegar svo við að nefndin klofnaði í afstöðu sinni og komu þrjú álit fram.

Meirihluti nefndarinnar, undir forystu Snorra Baldurssonar starfandi formanns, mælir með því að leyfi verði veitt án skilyrða, en fer fram á að málið fái svo nefnda grenndarkynningu og að nefndin fái árlega skýrslu um framgang ræktunarinnar. Álit sitt byggir meirihlutinn á því að (a) áhætta vegna hugsanlegrar dreifingar erfðabreyttra plantna, einkum víxlfrjóvgunar, sé lítil sem engin og að (b) heilsufars- og umhverfisáhættu af þeim próteinum sem framleiða á sé sömuleiðis lítil sem engin.

Í minnihlutaáliti Jóns Kalmanssonar kemur fram að hann treysti sér ekki til að mæla með veitingu leyfis til útiræktunar erfðabreyttra plantna, þar sem fara þurfi fram mun ítarlegri umræða en hingað til hafi verið um eðli og þýðingu slíkrar starfsemi ef þjóðarsátt eigi að skapast um málið. Þá segir í áliti hans: "Með fullri virðingu fyrir vísindamönnum þá er það að mínum dómi áleitin spurning hvort þeim sé yfirhöfuð treystandi til að umbreyta milljarða ára gömlum sameiginlegum arfi alls lífs á jörðinni á þann róttæka hátt sem erfðatæknin gerir mögulegan, með þeim ófyrirsjáanlegu og óafturkræfu áhrifum sem það kann að hafa á afkomendur okkar og aðrar lífverur á jörðinni."

Í minnihlutaáliti Gunnars Á. Gunnarssonar er mælt gegn veitingu leyfis þar sem "ekki hafi verið sýnt fram á ásættanlegt öryggi og afmörkun" ræktunarinnar. Ennfremur leiki vafi á um lögmæti afgreiðslu umsókna á grundvelli reglugerðar sem er úrelt samkvæmt EES samningnum.

 

 Til baka

 
  Prentvæn útgáfa     Senda síðu