|
Á morgun, miðvikudaginn 27. maí kl. 17.30, gangast nokkrir kennarar og nemendur í Háskóla Íslands fyrir málfundi og myndasýningu undir fyrirsögninni "Höfnum erfðabreyttum lífverum á Íslandi!" Fundurinn er haldinn í Háskólatorgi nr. 102.
Tilefni fundarins er fyrirliggjandi umsókn um leyfi til stórfelldrar útiræktunar á erfðabreyttu byggi til lyfja- og iðnaðarframleiðslu á Rangárvöllum.
Sýnd verður kvikmyndin "The World According to Monsanto" sem fjallar um félagsleg og vistfræðileg áhrif ræktunar erfðabreyttra plantna og skaðleg áhrif einkaleyfa sem líftæknifyrirtæki hafa komið sér upp á frætegundum.
Hinn heimskunni metsöluhöfundur Jeffrey Smith ávarpar fundinn og í lokin verða almennar umræður um málefni fundarins.
|
|