|
Eins og kunnugt er þá hefur Umhverfisstofnun nú til meðferðar umsókn frá íslensku líftæknifyrirtæki um stórfellda útiræktun á erfðabreyttu byggi til lyfja- og iðnaðarframleiðslu. Almenningi og samtökum var einungis gefinn rúmlega viku frestur til að gera athugasemdir við umsóknina, en almennur útdráttur úr umsókninni var birtur af því tilefni á heimasíðu Umhverfisstofnunar. Ýmsar leiðir eru til að vekja athygli á sjónarmiðum sínum í því sambandi, m.a. eftirfarandi:
1. Sendið ykkar eigið persónulega álit í tölvupósti eða bréfi til Umhverfisstofnunar (ust@ust.is eða karlk@Umhverfisstofnun.is). 2. Skráið ykkur á Fésbókarhópinn Ísland án erfðabreyttra lífvera um málið. 3. Skráið ykkur í Fésbókarhóp Slow Food um málið. 4. Takið þátt í undirskriftasöfnun um málið. 5. Sendið bréf með meðfylgjandi texta eða breytið honum að vild og sendið á Umhverfisstofnun, umhverfisráðuneytið eða aðra sem við á.
Umsóknarfrestur er sagður til 28. maí.
|
|