ORÐ VÍSINDAMANNA


Ummæli þekktra vísindamanna um erfðatæknina

Erfðabreytingar eru umdeildar og má rökræða frá ýmsum almennum sjónarhornum – vísindalegum, pólitískum og félagslegum – eða líta á frá mjög þröngu sjónarhorni sem eitt afmarkað mál á borð við markaðssetningu á nýrri tækni. Tvær eftirfarandi tilvitnanir sýna hve andstæð viðhorf eru til þessarar róttæku tækni.

„Þetta mál [erfðabreytingar] er miklu mikilvægara en svo að það megi eftirláta það eingöngu vísindasamfélaginu og heilbrigðisstéttunum. Sú trú að … vísindin þokist stöðugt framávið er eins konar frjálshyggjuóráð sem minnir dapurlega á þá trúarjátningu að sé bandarískt viðskiptalíf látið afskiptarlaust leysi það hvers manns vanda. Rétt eins og aukin arðsemi fyrirtækis leiðir ekki endilega til bættra mannlegra kjara, þá leiða vísindalegar framfarir ekki sjálfkrafa til þess að líf okkar verði ‚þýðingarmeira‘.“

(Dr. James Watson, Nóbelsverðalaunahafi og með-uppgötvandi DNA - tvöföldu gormlaga kjarnsýrusameindarinnar.)

 

 „Monsanto ætti ekki að þurfa að skýra frá öryggi erfðabreyttra matvæla.  Hagsmunir okkar eru að selja sem mest af þeim.“ 

(Phil Angill, framkvæmdastjóri fyrirtækjasamskipta hjá Monsanto.)

Meira