Heilsufar og erfðabreytt matvæli

Málsvarar  erfðatækninnar fullyrða  að  ekki sé  munur á erfðabreyttum matvælum og venjulegum matvælum og að af þeim fyrrnefndu stafi því engu meiri heilsufars-áhætta. Er hægt að færa sönnur á þá staðhæfingu?

 

Erfðabreytt matvæli eru afurðir erfðatækni sem breytir matjurtum með því að splæsa í þær genum úr framandi tegundum (bakteríum, vírusum, óskyldum matjurtum eða jurtum sem ekki eru notaðar til matar, skordýrum, búfé, fiski eða jafnvel mönnum) í þeim tilgangi að breyta eiginleikum þeirra. Venjulegar matjurtir eru afurðir náttúrulegrar æxlunar sem ekki verður milli ólíkra tegunda.

 

Þar sem erfðabreytt matvæli innihalda gen sem ekki er að finna í venjulegum matvælum er ekki hægt að halda því fram að þau séu eins, og því síður er hægt að gefa sér fyrirfram að áhrif þeirra á heilsufar séu sambærileg. (Sjá ERFÐABREYTT MATVÆLI)

 


Á hve traustum vísindum byggja erfðabreytt matvæli?

Hve örugg er tæknin að baki erfðabreyttum matvælum?

Er heilsufarsáhætta samfara erfðabreyttum matvælum?

Erfðabreytt matvæli hafa ekki verið prófuð hvað varðar heilsufarsáhættu

Mengunarslys af völdum erfðabreyttra lífvera hafa skapað heilsufarsáhættu

Breskar rannsóknir afhjúpa heilbrigðisvandamál tengd erfðabreyttum matvælum