Erfðabreyttar lyfja- og iðnaðarplöntur eru notaðar til að rækta lyf og iðnaðarvörur. Lyf og iðnaðarefni hafa lengst af verið framleidd í verksmiðjum byggðum á bakteríugerjun eða frumuræktun (með frumum úr spendýrum). Slíkar aðferðir við framleiðslu lyfja eru dýrar – en tiltölulega öruggar, þar sem framleiðslu er haldið innandyra.
Hagnýting erfðatækni á nytjaplöntum til framleiðslu á lyfjum og iðnaðarvörum hefur komist á dagskrá vegna þess að ‚ræktun‘ þessara afurða er ódýrari en framleiðsla þeirra í verksmiðjum. En framleiðsla lyfja og iðnaðarefna úti í opnu umhverfinu hefur í för með sér mikla áhættu af nýrri tegund fyrir umhverfi, heilsufar, matvæli og fóður. Erfðabreyttar lyfja- og iðnaðarplöntur hafa hlotið mikla kynningu, en hugsanlegir kostir þeirra verða þegar upp er staðið vegnir andspænis áhættu sem þær hafa í för með sér.