|
Erfðabreytt matvæli eru afurðir erfðatækni sem breytir plöntu með því að splæsa í hana framandi geni úr ólíkum tegundum – til dæmis bakteríu, vírus, óskyldum matjurtum eða jurtum sem ekki eru notaðar til matar, skordýri, öðrum dýrum og jafnvel úr manni – í því skyni að endurhanna plöntuna og veita henni eftirsóknarverða eiginleika.
Ef vísindamenn hyggjast búa til frostþolinn tómat gætu þeir splæst í þessa plöntu geni úr heimskautafiski (t.d. flyðru) til að framleiða frostþolið prótein.
Plöntur sem framleiddar eru með erfðabreytingum eru gjörólíkar plöntum sem framleiddar eru með náttúrulegum ræktunaraðferðum vegna þess að þær hafa að geyma gen sem tekin voru úr ólíkum tegundum. Náttúruleg æxlun verður ekki milli tegunda, og sérhver tilfærsla gena milli tegunda á sér stað innan þess öryggis sem náttúruleg þróun veitir.
|
|