Hvað er erfðatækni?

Tækni  sú  sem notuð  er til að erfðabreyta lífverum með flutningi á genum úr einni lífveru yfir í aðra er nefnd erfðatækni. Lífverur sem breytt hefur verið með þessari tækni eru nefndar erfðabreyttar lífverur.

 

Með erfðatækni er unnt að búa til lífverur sem aldrei gætu orðið til í náttúrunni. Náttúruleg æxlun á sér stað innan sömu eða náskyldra tegunda, en erfðatæknin gerir vísindamönnum kleyft að flytja gen milli ólíkra tegunda. Þeir geta til dæmis flutt gen úr bakteríu, vírus, fiski, landdýri og jafnvel manni, og komið því fyrir í plöntu.

 

Tilgangur erfðatækninnar er að breyta einkennum eða eiginleikum lífveru. Ef vísindamenn vilja til dæmis búa til frostþolinn tómat gætu þeir ákveðið að koma fyrir í honum geni úr heimskautafiski sem framleiðir prótein sem eykur frostþol.

 


Hvernig er erfðatækninni beitt?

Hvaða óvissa fylgir notkun erfðatækninnar?

Getur erfðatæknin leitt til óhappa?