|
Árið 1953 uppgötvuðu tveir vísindamenn í Cambridge á Englandi, þeir Francis Crick (1916-2004) og James Watson (1928-), hina tvöföldu gormlaga kjarnsýru-sameind (DNA). Lífsferli, uppbygging og lífeðlisleg hegðun hverrar einustu lífveru, allt frá smæstu bakteríum til flóknustu spendýra, ákvarðast að hluta eða mismiklu leyti af þeim upplýsingum sem felast í erfðamenginu (DNA). DNA er stundum nefnt forskrift eða kóði lífvera. Erfðavísindin gefa fyrirheit um að takist okkur að skilja hvernig DNA starfar þá getum við meðhöndlað lífið á fyrirsjáanlegan og skipulegan hátt.
|
|