Í þessum þætti verður litið á nýjustu skoðanakannanir um álit almennings á notkun líftækni í landbúnaði, matvælaframleiðslu og fóðurgerð. Rætt er um kosti og lesti erfðabreyttra matvæla frá sjónarmiði neytenda. Drjúgum hluta er varið í umræðu um hvernig unnt sé að greina erfðabreytt matvæli og hvernig þau eru merkt.
Ein megin spurningin varðandi erfðabreytt matvæli er hvernig hinn almenni neytandi geti greint þau. Í ljósi þess hve opinber stjórnun og reglugerðir um framleiðslu og sölu á erfðabreyttum afurðum eru mismunandi, hver er möguleiki neytandans til að beita ‚valfrelsi‘ sínu á heimsvæddum markaði? Þetta er að hluta til spurning um að kunna að lesa vörumerkingar og að nokkru leyti spurning um að neytandinn noti heilbrigða skynsemi til að velja það sem hann álítur öruggast.